Gler

Gler

Innrammarinn býður bæði upp á venjulegt flotgler og einnig Artglass gler með glampavörn sem er mun tærara og ver myndirnar þínar gegn áhrifum sólarljóss.

Almennt er notað 2 mm flotgler við innrömmun en ef þú vilt að glerið sjáist varla og vilt leyfa litunum að njóta sýn þá mælum við með Artglass gleri með glampavörn og vörn gegn UV geislum.

 

Jafnvel ljós á sér dökka hlið

Útfjólublá geislun (UV) getur verið versti óvinur listaverka. Málning, strigi og pappír geta tekið í sig þá orku sem kemur frá ljósi og haft efnafræðilega virkni sem leiðir til þess að verkið gulnar, litir breytast og dofna. Þessi áhrif sjást best á dagblaði sem skilið er eftir í sól og pappírinn verður gulur. Útfjólublá geislun getur einnig stuðlað að því að pappír verði stökkur. Skemmdir af völdum útfjólublárrar geislunar safnast upp með tímanum og eru óafturkræfar.

Það er ekki einungis sólarljós sem gefur frá sér skaðlega geisla – allir ljósgjafar gera það. Halogen ljós og flúrljós gefa þó frá sér meira af UV geislum en önnur ljós eins og til dæmis glóperur og LED ljós

 

Hreinsun á glampafríu gleri

Best er að nota örtrefjaklút, ef það þarf vökva þá er best að nota propanol. Varist að nota vatn því það mun skilja eftir sig rákir. 

Ef örtrefjaklútur er ekki við hendina, notið þá klút sem er ekki úr bómull.

Ekki sprauta vökva beint á glerið. Vökvi getur smitast inn í rammann og skemmt listaverkið.